65. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 2. júní 2023 kl. 10:05


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 10:05
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 10:05
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 10:05
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 10:05
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 10:05
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 10:05
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ) fyrir (KFrost), kl. 10:05
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 10:05

Guðbrandur Einarsson boðaði forföll.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:05
Frestað.

2) 231. mál - úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara Kl. 11:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Magnús Dige Baldursson og Elísabetu Pálmadóttur frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.

3) 952. mál - virðisaukaskattur o.fl. Kl. 10:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðlaugu Maríu Valdemarsdóttur og Elínu Guðjónsdóttur frá fjármála- og efnhagsráðuneyti og Gunnar Baldvinsson frá Almenna lífeyrissjóðnum.

4) 880. mál - rekstraraðilar sérhæfðra sjóða o.fl. Kl. 11:50
Tillaga formanns að afgreiðslu málsins var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Undir nefndarálit meiri hluta og breytingartillögur rita Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður, Diljá Mist Einarsdóttir, framsögumaður, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson og Guðbrandur Einarsson.

5) Önnur mál Kl. 11:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:55